Venjulega eru öll þessi farartæki yfirhlaðin af mönnum og varningi og oft eru fólksflutningafarartæki líka notuð fyrir flutning á varningi og eins eru flutningabifreiðar notaðar til fólksflutninga.
Þessi farartæki má öll sjá á sömu götu á sama augnabliki.
Ekki er óalgengt að sjá traktor draga stóra kerru fulla af fólki - mögulega hundrað manns. Flutningabifreið gæti verið notuð til flutninga á varningi eina leið en fólki á leiðinni til baka en með bílstjóranum sitja að jafnaði um 4 farþegar óháð því hvað er á pallinum. Stundum er fólk sent upp á þak rútu ef hún er troðin - og þá er hún virkilega troðin, því rútur eru yfirleittar troðnar.
Oftar en einu sinni hef ég séð 6 farþega á einu mótorhjóli. Margoft hef ég séð reiðhjólsbílstjóra rickshawsins draga á eftir sér 6 manna fjölskyldu.Þegar varningur er fluttur á milli staða í trukkum, traktorum, vagni dregnum af húsdýri eða flutnings-rickshaw er allt gert til að troða sem mestu í pallana og framlengja þá uppávið.
Með öðrum orðum eru vélar, skepnur og menn notaðar til hins ítrasta við flutninga hér í Indlandi.
Andlát í umferðarslysum á Íslandi virðast ekki vera mikið færri en þau á Indlandi miðað við höfðatölu, merkilegt nokk. Það skal þó taka fram að höfðatölusamanburðurinn er eiginlega ónýtur sökum þess hve margir nota farartæki á Íslandi miðað við á Indlandi.
Þangað til nýlega hafði Indian Railways (IR) einokunarstöðu yfir lestarsamgöngum í landinu. Í dag hefur IR mestan fjölda starfsfólk í öllum heiminum og á ári hverju flytja lestir fyrirtækisins 6 milljarða manna og 750 milljón tonn af varningi.
Líkt og önnur farartæki í Indlandi eru lestirnar yfirfullar, þó eru aldrei fleiri farþegar í dýrari farrýmum lestanna en sem nemur sæta- eða beddafjölda. Þeir fátækustu nota tómar faraangursgeymslur lestanna til að ferðast á milli staða. Troðningur á ódýrustu farrýmum lestanna verður oft til þess að fólk dettur út úr lestunum á ferð og stórslasast. Sumir þessara óheppnu farþega stinga upp kollinum á Sewa hælinu (e. Sewa Ashram) sem ég heimsótti um daginn.
Sewa Ashram
Sewa hælið var stofna af kristnum Hollendingi sem dag einn í ferðalagi sínu í Indlandi ákvað að taka að sér hætt kominn þurfaling og flytja hann í herbergið sitt í Delhi. Hollendingurinn Ton, sem í dag er kallaður Ton Baba, stjórnar 120 manna hæli fyrir sjúka, slasaða, munaðarlausa og ósjálfbjarga þurfalinga sem hann finnur á sunnudagsrúntum sínum í Delhi.
Ton Baba (til vinstri)
Heimsókn mín í Sewa hælið var vægast sagt mögnuð lífsreynsla og jafnframt áhrifamesta lífsreynslan mín hérna úti. Af veikum mætti reyndi ég að hjálpa til í þá tvo daga sem ég gisti í Sewa hælinu. Meðal þess sem ég gerði var að taka myndir með það að markmiði að færa þær inn á myndasíðuna mína og vekja fólk til umhugsunar. Ég hjálpaði líka manni við að læra að ganga og aðstoðaði áströlsku vinkonu mína Erin í leikfimitímunum sem hún heldur fyrir íbúa hælisins. Sewa hælið þiggur frjáls framlög í gegnum heimasíðu sína.
Sjá nýtt myndaalbúm á síðunni minni fyrir frekari upplýsingar.
Daginn sem ég heimsótti hælið dó gamall maður sem Ton hafði nýlega fundið. Um þennan mann má lesa á bloggsíðu Erin. Myndbrot úr jarðarförinni er á youtube síðunni minni en myndir á myndasíðunni.
